Features & Capabilities

Þróunarsjóður námsgagna 2019 veitti styrk til að þróa áfram þrjá leiki í lok hvers borðs og að viðhalda virkni forritsins Lærum og leikum með hljóðin. Kærar þakkir!

D bókstafurinn og hljóðið hans er kennt á lifandi og skemmtilegan hátt með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður D - hljóðsins kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Ef þú ætlar að kaupa smáforritið með ölllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin - ALLT. Auðveldar allar seinni uppfærslur.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT, er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir læsi. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Fjöldi erlendra viðurkenninga frá fagaðilum og foreldrum hafa verið veittar m.a. á BETT2016 sem eitt af sex bestu forritum í menntun og viðurkenning veitt hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin ALLT inniheldur:

  • Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
  • Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur
  • 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið
  • Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
  • Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
  • Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
  • Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð
  • Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
  • Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
  • Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
  • R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
  • Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga
  • Hrós veitt reglulega í forritinu
  • Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
  • Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
  • Stigagjöf inni í forritinu
  • Árangur sýndur í %
  • Skráning athugasemda inni í forritinu
  • Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
  • Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
  • Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com

User Growth & Download Statistics

App
By:
Raddlist
Rating:
5.00
(1)
Version:
2.6 Last updated: 2017-06-02
Version code:
841431766
Creation date:
2013-08-18
Compatible devices:
Size:
431.43MB
Price:
0.99
URLs:
Website ,Privacy policy
Full description:
See detailed description
Source:
Apple Apps Store
Data ingested on:
2026-06-06
Compare stats and ranking:

Contact the developer

Chrome-Stats does not own this Apple app. Please use these information below to contact the Apple app developer.
Developed by:
Raddlist
Apple Apps Store
https://apps.apple.com/is/app/l%C3%A6rum-og-leikum-me%C3%B0-hlj%C3%B3%C3%B0in-d/id633990827
Website:
http://laerumogleikum.is

User Reviews

We were in Iceland this summer. We wanted to learn some interesting Icelandic sounds - and were suggested the easy way. This App is great, although it has Icelandic info - it is amazing to find out how much we understand along with the great pictures. You can also change settings to English! - So: Takk fyrir thetta frabaer forrit!
by Je*****, 2014-08-03

Ég er bæði kennari og móðir drengja sem þurftu á sínum tíma á talkennslu að halda. Hér er komið frábært app sem ég mun bæði nýta í kennslu og heima fyrir litlu stelpurnar mínar. Ég er sérstaklega ánægð með það að geta skráð inn nemendur og eins að geta tekið upp. Vel gert!
by Bl*****, 2013-08-25
View all user reviews ›

Best Lærum og leikum með hljóðin -D Alternatives

Here are some Apple apps that are similar to Lærum og leikum með hljóðin -D: