Ökuvísir Android

Ökuvísir

Bættu þig sem ökumaður, borgaðu minna í tryggingar & fækkaðu slysum í umferðinni

Features & Capabilities

Nýjung á Íslandi!

Ökuvísir frá VÍS er byltingarkennd nýjung hér á landi, en slíkur vísir er vel þekktur erlendis. Reynslan þar sýnir að tjónum fækkar allt að 20% hjá þeim sem nota slíka tækni. Í samvinnu við viðskiptavini okkar ætlar VÍS að bæta umferðarmenningu á Íslandi og fækka slysum.

Ökuvísir er ný leið í tryggingum þar sem verðlaunað er fyrir öruggan akstur og þannig minnkum við líkur á slysum. Ökuvísir veitir þér endurgjöf á aksturinn í gegnum app. Hann byggir á nýjustu tækni sem nýtir upplýsingar úr snjallsímanum þínum varðandi hraða, hröðun, staðsetningu og stefnu bílsins. Ökuvísir gefur akstrinum einkunn.

Samstarfsaðili VÍS í Bandaríkjunum, Cambridge Mobile Telematics, notar gögnin til þess að gefa þér svo uppbyggilega endurgjöf á aksturinn.

Einkunnin byggir á eftirfarandi þáttum: (1-5 stjörnur):
• Hraða – Hvort þú keyrir yfir hámarkshraða og hversu lengi.
• Hröðun - Hversu hratt þú eykur hraðann.
• Hemlun– Hvort þú bremsar harkalega.
• Beygjur - Hvort þú keyrir of hratt í beygjum.
• Símanotkun – Hvort þú notir farsíma án handfrjáls búnaðar.

Aksturseinkunnin ásamt því hversu mikið þú keyrir (eknir kílómetrar) ákvarðar svo hvað bú borgar fyrir tryggingarnar í hverjum mánuði. Upphæðin getur því breyst milli mánaða. Aldur þinn, búseta, bíltegund eða skóstærð skiptir ekki máli. Bara hvernig þú ekur og hversu mikið.

Þú getur prófað Ökuvísi í allt að 14 daga áður en þú ákveður hvort þú vilji kaupa trygginguna. Þegar gengið hefur verið frá kaupum á tryggingunni þá sendum við þér lítinn kubb. Til þess að virkja kubbinn þarft þú að festa hann í framrúðuna á bílnum og tengja hann við snjallsímann þinn.

Kubburinn og snjallsíminn vinna svo saman og gefa enn betri mælingu á akstrinum. Kubburinn tengist símanum í gegnum Bluetooth. Kubburinn mælir hröðun, stefnu og hraða en ekki staðsetningu. Með því að hafa kubbinn í bílnum aukast gæði mælinganna og akstureinkunnin verður nákvæmari.

Við mælum með að prófa Ökuvísi, það kostar ekkert að prófa appið til þess að sjá hver þín aksturseinkunn er og sjá hvað þú munt borga í tryggingar.

User Growth & Download Statistics

App
By:
Vátryggingafélag Íslands hf.
Downloads:
7,098 15
Version:
1.85 Last updated: 2025-12-11
Version code:
95
Creation date:
2021-03-05
Publisher country:
IS IS
Permissions:
  • android.permission.ACCESS_BACKGROUND_LOCATION Very high risk
  • android.permission.ACCESS_COARSE_LOCATION Very high risk
  • android.permission.ACCESS_FINE_LOCATION Very high risk
  • android.permission.CAMERA Very high risk
  • android.permission.RECORD_AUDIO Very high risk
  • android.permission.ACTIVITY_RECOGNITION High risk
  • android.permission.READ_EXTERNAL_STORAGE High risk
  • android.permission.WRITE_EXTERNAL_STORAGE High risk
  • com.google.android.gms.permission.ACTIVITY_RECOGNITION High risk
  • android.permission.BLUETOOTH_CONNECT Moderate risk
  • See more
Size:
89.92MB
Email:
vi*****@vis.is
URLs:
Website ,Privacy policy
Full description:
See detailed description
Source:
Google Play Store
Data ingested on:
2026-06-11
Compare stats and ranking:

Contact the developer

Chrome-Stats does not own this Android app. Please use these information below to contact the Android app developer.
Developed by:
Vátryggingafélag Íslands hf.
Google Play Store
https://play.google.com/store/apps/details?id=is.vis.app
Email:
vi*****@vis.is
Website:
https://vis.is/

User Reviews

Mæli ekki með að prófa þetta. Ég fékk venjulega Vís tryggingu, tók víku trial í app, fannst svo of intrusive að það væri að fylgjast með hvert ég var að keyra og eyddi appinu út. Svo fæ ég 3mánuðum seinna hæsta tvöfald upphæð til greiðslu tryggingu því ég þurfti aparantly að láta vita að ég vildi ekki app, skiptir engu að það var trial eða að ég eyddi því út. Og ekki er hægt að leiðrétta þetta afturvirkt. Hringdi í þjónustu og fékk bara það svar að þau geta ekkert gert
by Ni*****, 2024-07-03

Measuring breaking and cornering is just joke
by ra*****, 2024-05-14
View all user reviews ›

Best Ökuvísir Alternatives

Here are some Android apps that are similar to Ökuvísir: