# Lærum og leikum með hljóðin -D

> Education

Canonical page: [https://chrome-stats.com/d/id633990827](https://chrome-stats.com/d/id633990827)

## Overview

- **ID:** `id633990827`
- **Platform:** Apple
- **Type:** Apple app
- **Status:** Available
- **Publisher:** Raddlist
- **Category:** Education
- **Rating:** 5.00 / 5 (1 ratings)
- **Version:** 2.6
- **Last updated:** 2017-06-02
- **First published:** 2013-08-18
- **Size:** 431 MB
- **Data as of:** 2026-09-24
- **Store listing:** [Apple App Store](https://apps.apple.com/is/app/l%C3%A6rum-og-leikum-me%C3%B0-hlj%C3%B3%C3%B0in-d/id633990827)
- **Website:** [http://laerumogleikum.is](http://laerumogleikum.is/)
- **Privacy policy:** [http://laerumogleikum.is/privacypolicy/](http://laerumogleikum.is/privacypolicy/)

## Description

Þróunarsjóður námsgagna 2019 veitti styrk til að þróa áfram þrjá leiki í lok hvers borðs og að viðhalda virkni forritsins Lærum og leikum með hljóðin. Kærar þakkir!

D bókstafurinn og hljóðið hans er kennt á lifandi og skemmtilegan hátt með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður D - hljóðsins kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Ef þú ætlar að kaupa smáforritið með ölllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin - ALLT.  Auðveldar allar seinni uppfærslur.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT, er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir læsi. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og  Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Fjöldi erlendra viðurkenninga frá fagaðilum og foreldrum hafa verið veittar m.a. á BETT2016 sem eitt af sex bestu forritum í menntun og viðurkenning veitt hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT  tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2.
Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin ALLT inniheldur:
- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar                                                                                                                                                       Þorgeirsdóttur
- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið 
- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð 
- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með                                                      sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
- Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem                                                                                                                          myndir koma á víxl til frekari æfinga
- Hrós veitt reglulega í forritinu
- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
- Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
- Stigagjöf inni í forritinu
- Árangur sýndur í %
- Skráning athugasemda inni í forritinu
- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
- Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

Frekari upplýsingar:
http.www.youtube/laerumogleikum 
www. laerumogleikum.is      www. kidssoundlab.com

## Rankings

- #840,742 — Overall

## Similar extensions and apps

- [Lærum og leikum - Allt](https://chrome-stats.com/d/id667452955) — 5.00 / 5
- [Læsir](https://chrome-stats.com/d/id6446181462) — 1.00 / 5
- [Orðagull](https://chrome-stats.com/d/id1124475935) — 4.80 / 5
- [Heimalestur](https://chrome-stats.com/d/id6752253910)
- [Georg og leikirnir](https://chrome-stats.com/d/id1042234259) — 3.60 / 5
- [BarnaStund](https://chrome-stats.com/d/id6759914102)
- [Kennsluappið](https://chrome-stats.com/d/id1449619343)
- [Undralingur](https://chrome-stats.com/d/id6474342185) — 5.00 / 5
- [Orðrýna](https://chrome-stats.com/d/id1477881291) — 4.30 / 5
- [Georg og félagar](https://chrome-stats.com/d/id885638618) — 4.10 / 5
- [Vala Leikskólastarf](https://chrome-stats.com/d/id1441313286)
- [Orðaleikurinn](https://chrome-stats.com/d/id838560365) — 5.00 / 5

---

Source: [Chrome-Stats](https://chrome-stats.com/d/id633990827)
